Gaman og brjálað að gera

Vááá...mér finnst eins og ég sé búin að vera að vinna hérna í sjö mánuði! Hér fer enginn heim fyrir klukkan 10 á kvöldinn. Það var einum sagt upp í morgun því hann fór snemma heim tvö kvöld í röð (snemma er um 7 leytið). En reyndar skildi hann verkin sín bara eftir fyrir okkur hin að klára. En þetta er ekkert smá job sem ég er í hérna.

Á morgun er ég að fara ein að halda kynningu hjá stærsta kúnnanum okkar, Nestle. Það er auglýsingaherferð á nýrri tegund af Maggi núðlum og mér var falið að skipuleggja "Launch Plan", útgáfu partý...eða eitthvað svoleiðis! Sem sagt mér er bara hent útí djúpu laugina sem er af sjálfsögðu bara frábært...besta leiðin til að læra. Ég er bara svolítið skellkuð á þessu öllu saman því þetta er bara fjórði dagurinn minn í dag.

Terima Kasih


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrefna Rós Matthíasdóttir

Það er aldeilis!!  Ég veit að þú átt eftir að rúlla því upp Ágústa mín!:)  Gangi þér rosa vel elsku frænka!

knús knús

Hrefna Rós Matthíasdóttir, 9.4.2009 kl. 10:34

2 Smámynd: Elsa Nielsen

Vá maður minn... þetta hljómar spennandi og krefjandi. Akkurat fyrir þig elsku Ágústa mín - þú hraunar þetta ... enda með eindæmum góð í að skipuleggja skemmtilegar veislur :) Gangi þér vel dúllan mín... njóttu þess að geta hellt þér í vinnu :) KNÚÚÚS

Elsa Nielsen, 10.4.2009 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband